Nú hefur aldeilis margt gerst hjá mér síðan að ég bloggaði síðast en hér kemur stutt blogg um það.
Ég sem sagt ætlaði að fara á upplestrarkeppnina á föstudaginn með Hildi til að spila á píanóið sem skemmtiatriði. Eeeen eins og flestir vita þá gékk það ekki alveg. Við sem sagt veltum

Við fórum með Siggu kennara og það var búið að vera ógeðslegt færi allan ´Hólasandinn. síðan þegar að við vorum komin pínu lengra en aflageirinn í aðaldal þá missti Sigga stjórn á bílnum í krapi og hann svigaði fyrst pínu á veginum fór síðan útaf ogí hálfhring og síðan á hvolf

Það kom e-ð fólk að og hringdi í neyðarlínuna. Síðan voru kallar þarna frá vegaeftirlitinu og við fórum í bílinn hjá þeim og keyrðum á móti sjúkrabílnum. síðan fórum við í smá tékk í sjúkrabílnum og síðan brunað niður á sjúkrahús. Þegar þangað var komið fórum við inn á stofu og Hallgrímur læknir skoðaði okkur meira. Hann vildi síðan hafa mig lengur því að hann var hræddur um miltað á mér. Síðan kom pabbi og Sigga fór. Hildur varð samt eftir (sem betur fer). Það voru gerðar nokkrar blóðþrýstingsmælingar en síðan mátti ég fara heim og Hildur kom með. Þannig að við spiluðum víst ekki neitt á upplestrarkeppninni eftir allt saman og það sem var búið að vera svo mikið vesen útaf þessu. Þau nefnilega gátu ekki ákveðið hverjir ættu að spila.
Síðan daginn eftir þá fermdist ég víst. Það var mjög gaman ég vaknaði klukkan 8 og fór í sturtu og síðan í greiðslu. síðan þurfti að klæðamig í upphlutinn og það var pínu vesen. Þegar við komum í kirkjuna þá þurfti ég að æfa mig að krjúpa til að ég myndi ekki bara detta

En allavegana við fermdust og allt gékk vel. Nema hvað oblátan er ógeðsleg

síðan í veislunni var gaman. Ég var eginlega allan tíman bara að taka á móti gestum, segja bless við þá, opna pakka og borða. Ég var líka eiginlega bara hlaupandi um húsið. Síðan í endanum þá fór ég úr upphlutnum því guð minn almáttugur hvað er þreytandi að vera í svona. Síðan í stuttu máli þá fékk ég 8 hálsmen, hring, 5 eyrnalokka (ég er ekki með göt í eyrunum), flatskjá, ipod hátalara sem eru gg góðir, fartölvu, mús, 2 fartölvutöskur, nakta gellu, síma,2 box fyrir hálsmen og þannig, 2 sængurver, heyrnatól, afmælisdagabók,136 000kr og síðast en ekki síst dorg frá Óla.
Síðan þá var ég áðan í skíðaferðalagi og það var rosalega gaman. Ég prufaði bretti í endanum og ég var gg góð. Ég fór niður hálfa stólalyftubrautina og síðan niður skálaleiðina og ég var bara 5 mín niður skálabrautina. Ég tek fram að þetta var í fyrsta skipti sem að ég fór á bretti og ég datt bara 4-5 sinnum



Þetta er komið nóg. Ég ætla að fara að láta mér batna í rófubeininu. Það er nefnilega ekki gott að vera á bretti og detta á það.
bless í bili